MBL
VerifiedOnline/Digital
Join the conversation with mbl.is on Twitter - netfrett@mbl.is - News from mbl.is, the biggest media website in Iceland. Source
Actions
Media Outlet details
| Scope | International, National |
|---|---|
| Language | English, Icelandic |
| Country | Iceland |
|
Similarweb UVM |
Request pricing |
|
Comscore UVM |
Request pricing |
Recent Articles
Search ArticlesMyndskeið: Tilbúin í undanúrslitin
Æfingadagurinn á Evrópumótinu í hópfimleikum hjá A-landsliðunum fór fram í Espoo, Finnlandi í dag. Blandað lið Íslands byrjaði daginn vel og átti kvennaliðið einnig góðan dag á æfingum fyrir undanúrslitin á morgun. „Það er mikill hugur í báðum liðunum og spennan er mikil fyrir morgundeginum, þar sem sex bestu liðin tryggja sér sæti í úrslitum á laugardaginn,“ segir í fréttatilkynningu Fimleikasambands Íslands.
Óskar Hrafn og Laufey selja hæðina
Laufey Kristjánsdóttir kraftlyftingakona og Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari hjá KR hafa sett íbúð sína við Nesveg á sölu. Um er að ræða 114 fm íbúð sem er í húsi sem reist var 1988. Arkitektar hússins eru Úti og inni ehf. og var vandað til verka þegar húsið var byggt. Óskar Hrafn og Laufey festu kaup á íbúðinni fyrir tæplega tveimur árum. Heimili þeirra er smekklega innréttað. Niðurlímt fiskibeinaparket er á stofu og eldhúsi. Í stofunni er líka arinn og svalir sem snúa í suður.
Tíu mánuðir og 1,16 milljónir í sakarkostnað
Innlent | mbl | 14.10.2026 | 14:14 Meðal brotanna var akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna þar sem hann ók gegn rauðu ljósi og á röngum vegarhelmingi og sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva. Myndin er úr safni. Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í tíu mánaða fangelsi fyrir þjófnaði, gripdeild, nytjastuld og umferðarlagabrot. Honum var jafnframt gert að greiða 1.155.573 krónur í sakarkostnað og ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð.
Sjór gæti gengið á land við Vík í Mýrdal
Lögreglan á Suðurlandi varar við hárri sjávarstöðu og mikilli ölduhæð nærri suðurströndinni seinnipartinn í dag og fram á kvöld. Sérstaklega varar hún við því að sjór geti gengið á land við Vík í Mýrdal, að því er kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar. Á vef Vegagerðarinnar í gær kom fram að spáð væri hárri og þungri sunnanöldu, yfir átta metra, rétt utan Víkur. Talað var um að ölduhæð myndi ná hámarki um klukkan 21 í kvöld. Við svipaðar aðstæður í desember í fyrra flæddi yfir þjóðveginn.
Vill grípa inn í markaðssetningu nikótínvara
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra vill grípa inn í markaðssetningu nikótínvara sem höfðar til barna og ungmenna. Í umræðum á Alþingi í gær sagði hún markaðssetningunni beinlínis beint að þessum hópi og nefndi bleikar dósir með glimmeri og bragðefni á borð við jarðarberja- og sælgætisbragð. Ríkisstjórnin hygðist jafnframt beita sér með því að móta ungmennastefnu og með þjóðarátaki um heilsu og velferð barna og ungmenna.
Baka dag og nótt fyrir börn sem misst hafa ástvin
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, sem heldur úti bökunarvefnum Blaka, ætlar ásamt eiginmanni sínum, Guðmundi Ragnari Einarssyni, og börnum þeirra að baka samfleytt í 24 klukkustundir um næstu helgi. Með bakstursmaraþoninu Bakað til góðs safnar fjölskyldan fé fyrir minningarsjóðinn Örninn, sem styður börn og ungmenni sem misst hafa náinn ástvin. Sjóðurinn hefur einnig stutt fullorðna aðstandendur og stendur meðal annars fyrir mánaðarlegum samverustundum. Baksturinn hefst laugardaginn 17.
Telur kyngreind starfsheiti ekki æskileg
„Þessi vandræðagangur með auglýsinguna sýnir í hnotskurn þann vanda sem kynjahalli íslenskra starfsheita getur skapað í þjóðfélagi þar sem hvers kyns mismunun kynjanna er litin hornauga.“ Þetta segir Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, og leggur í pistli út af frétt mbl.is í morgun af því hvernig Veitur breyttu starfsauglýsingu og tóku út endinguna –stýri eftir að hafa litið til þeirrar afstöðu kvárs og trans manns að óþarfi væri að flækja...
Um 40 manns að störfum: Binda niður þök
Björgunarsveitir á Siglufirði hafa verið önnum kafnar við að binda niður þök til að koma í veg fyrir frekara tjón í bænum vegna óveðursins sem þar geisar. Einnig hafa þær hugað að bátum við höfnina. Um 40 björgunarsveitarmenn eru að störfum í bænum. Frá Siglufirði í dag. Þök hafa fokið af hluta húsa í bænum, þar á meðal íbúðarhúsum, segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, aðspurður.
Fleiri leikmenn United sagðir óánægðir
Lisandro Martinez gagnrýndi stjórnendur Manchester United eftir leik liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöldi og svo virðist sem fleiri leikmenn séu óánægðir með stöðuna hjá félaginu. Samkvæmt Talksport eru fleiri leikmenn á sama máli og Argentínumaðurinn, þótt ekki sé vitað hverjir þeir eru. Amad Diallo skrifaði: „Fjandans hneisa, ég er orðlaus,“ á samfélagsmiðilinn Snapchat í gær en ekki er vitað hvað leikmaðurinn átti við.
Einn handtekinn: Lögreglan varar foreldra við
Einn hefur verið handtekinn vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sölu falsaðra rafrænna skilríkja. Lögreglan varar jafnframt foreldra og forráðamenn við VPN-stillingu sem yfir 300 ungmenni nota og gerir ókunnugum aðila kleift að lesa og breyta netumferð til og frá símum þeirra, þar á meðal persónuupplýsingum og bankaupplýsingum. Hinn handtekni er grunaður um að hafa selt hundruðum ólögráða ungmenna fölsuð skilríki.