Is this you? As a journalist, you can create a free Muck Rack account to customize your profile, list your contact preferences, and upload a portfolio of your best work.
Claim your profile
Fyrirtæki í landeldi hafa umfangsmikil fjárfestingaráform til næstu ára. Takist þau áform getur orðið til ný og öflug útflutningsgrein sem skapar verðmæti, störf og skatttekjur um land allt. Þetta er uppbygging sem skiptir Ísland máli. Grunnurinn hefur þegar verið lagður. Innlendir og erlendir fjárfestar hafa lagt vel á 200 milljarða króna í uppbyggingu landeldis á Íslandi.
Eins og flestir Íslendingar vita nú er Landeyjarhöfn aðeins nothæf í 8-9 mánuði á ári, sextán árum eftir opnun. Þetta er með algjörlega óásættanlegt og skammarlegt fyrir ríkisstjórnir og samgönguráðherra síðustu 16 ára. Eru menn í alvörunni ennþá að átta sig á straumum, sandburði, öldutíðni, öldulengd, stærð á skipi og öðrum hlutum sem geta haft áhrif á Landeyjarhöfn?
Öll fyrirtæki reiða sig á stuðning samfélagsins. Í stórum verkefnum sem hafa áhrif á nærumhverfi fólks er mikilvægt að íbúar upplifi að á þá sé hlustað, að upplýsingaflæði sé skýrt og að skoðanir þeirra séu virtar. Að mínu mati er þetta ein af lykilforsendum þess að byggja upp traust og byggja varanleg verðmæti. Í greinum eins og fiskeldi, þar sem verkefni eru stór og sýnileg, verður þátttaka samfélagsins að vera í forgangi.
As a journalist, you can create a free Muck Rack account to customize your profile, list your contact preferences, and upload a portfolio of your best work.