Vísir.is
Verified
Online/Digital
Vísir.is is an Icelandic online newspaper. It was founded in 1998 by Frjáls fjölmiðlun ehf. and published news from the newspapers Dagblaðið Vísir, Viðskiptablaðið and Dagur. On December 1, 2017, it was bought by Fjarskipti hf. along with Stöð 2 and Bylgjan from 365 miðlar. Source
Actions
Media Outlet details
| Scope | National |
|---|---|
| Language | Icelandic, Polish |
| Country | Iceland |
|
Similarweb UVM |
Request pricing |
|
Comscore UVM |
Request pricing |
Recent Articles
Search ArticlesHljóðnema á dómarana og hvar er Kane?
Það er búið að gera alls konar breytingar á reglunum og Besta sætið vill sjá dómara með hljóðnema. Fordæmið er til staðar og margir sem myndu pottþétt fagna því. Breytingarnar eru nefnilega talsverðar eins og Kristinn Óskarsson fer ítarlega í gegnum í fréttinni hér að neðan. Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitli og ekki að ósekju. Álftanes er með rosalegan mannskap og magnaðan þjálfara í Baldri Þór Ragnarssyni.
Jóhann Berg leggur skóna á hilluna
Jóhann Berg á 18 ára atvinnumannaferil að baki þar sem hann lék lengst af á Englandi. Hann lék yfir 100 landsleiki fyrir Íslands hönd og fór með liðinu á bæði EM 2016 og HM 2018. „Eftir meira en 18 ára feril sem atvinnumaður er kominn tími á að ég leggi skóna á hilluna,“ skrifar Jóhann Berg í færslu á Instagram. Fótbolti hefur gefið mér allt, er á meðal þess sem segir einnig í færslunni.
Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“
Arsenal tilkynnti um nýjan samning Arteta í gær sem hann framlengir til sumarsins 2030. Þar með fær hann verðlaun fyrir frábæran árangur en síðan hann tók við liðinu árið 2019 hefur það tekið stakkaskiptum og varð Englandsmeistari í vor. Í löngu viðtali við The Athletic fer hann um víðan völl er viðkemur starfi sínu og sýn á fótboltann.
Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla
Húsleit var gerð hjá Andrew Mountbatten-Windsor, sem áður gekk undir titlinum Andrés prins, í tengslum við uppljóstranir um tengsl hans við Jeffrey Epstein, bandaríska auðkýfinginn og kynferðisbrotamanninn. Fyrrverandi prinsinn lá undir grun um að hafa deilt trúnaðarupplýsingum ólöglega með Epstein. Lögmenn hans hafa krafist þess að leitarheimildirnar sem lögregla fékk í febrúar yrðu ógiltar. Dómari í málinu sagði í dag að lögreglan hefði fallist á að heimildirnar hefðu verið ólögmætar.
100 ár af dellu
Nú árið 2026 eru 100 á liðin frá því tölfræðingurinn Yule gaf út grein sína, ,,Why do we Sometimes get Nonsense-Correlations between Time-Series?--A Study in Sampling and the Nature of Time-Series“. Í henni eru raktar ástæður tölfræðilegra sjónhverfinga sem gabba fólk til að álykta ranglega um tengsl. Tekið er dæmi um mjög vönduð gögn frá Ensku biskupakirkjunni og Enska landlæknisembættinu.
Ekki rétt sem Halla segir
Bjarni Benediktsson ræddi við fjölmiðla áður en fundurinn hófst. Hann sagði það verða að koma í ljós hvað gerist á fundinum. Eins og fram hefur komið hafa stéttarfélögin til klukkan 16 til að segja kjarasamningunum upp vegna forsendubrests. „Það er ekki rétt, það hafa allir séð það,“ sagði Bjarni Benediktsson spurður um fullyrðingar Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, um að ekkert mótspil hafi komið frá SA til að reyna að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði slitið.
Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum voru tilkynnt klukkan 11 í morgun og bættist Anne Carson í hóp Íslendinga sem hlotið hafa bókmenntaverðlaunin ásamt Halldóri Laxness. Fréttamaður Ríkisútvarpsins tók viðtal við Anne fyrir utan heimili hennar skömmu eftir að hún fékk fréttirnar og áður en hún kom sér úr símasambandi. „Ég held að þau séu öll klikkuð,“ sagði Carson þegar fréttamaður Rúv spurði hana út í það hvernig henni liði með verðlaunin.
Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla
Eigendur vinsælla hlaðvarpa hafa um langt skeið gagnrýnt tilraunir Fjölmiðlanefndar til þess að fá þá til þess að skrá þau sem fjölmiðla. Sumir þeirra hafa haldið því fram að þeir þyrftu að hætta starfsemi ef þeim væri gert að skrá sig. Nefndin hefur beitt suma þeirra sektum fyrir að skrá sig ekki. Nokkrir þeirra gengu á fund Loga Einarssonar, menningarmálaráðherra, í gær til þess að þrýsta á hann um að undanskilja hlaðvörp frá skráningarskyldunni.
Maðurinn sem hringdi í óvininn
Um helgina verða 40 ár liðin frá því að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, hittust í Höfða í Reykjavík. Fundurinn skilaði ekki þeim samningum sem menn höfðu vonast eftir og fyrstu dagana á eftir töldu margir hann hafa mistekist. En eftir því sem árin liðu kom betur í ljós hversu mikilvægur hann hafði verið. Þegar tuttugu ár voru liðin frá fundinum, árið 2006, var hann orðinn einn af merkari áföngunum á leiðinni að lokum kalda stríðsins.
Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15!
Frú forseti, ágætu landsmenn og borgarstjórn. Það er vegið að lýðræðinu okkar. Meirihlutinn í borginni virðist ætla að veikja lýðræðið enn frekar. Nú vilja borgarfulltrúar meirihlutans fækka fulltrúum úr 23 í 15. Oddviti Viðreisnar birti grein á Vísi í morgun til að réttlæta þessa aðgerð, á sama tíma og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi í fjórða sinn til að heimila einmitt þessa fækkun.