Í Þorlákshöfn er orðin til ný íslensk útflutningsgrein. Hjá First Water höfum við fjárfest fyrir tugi milljarða króna í landeldi, byggt upp sérhæfða starfsemi og hafið reglulegan útflutning á laxi til Evrópu og Norður-Ameríku. Í fyrra náði First Water mikilvægum áfanga þegar félagið varð eitt fyrsta landeldisfyrirtækið á heimsvísu til að hefja reglulega slátrun og pökkun á fimm kílóa slægðum laxi. Sá áfangi sýndi að forsendur eru hér til staðar til að ala hágæða landeldislax við íslenskar aðstæður.