Is this you? As a journalist, you can create a free Muck Rack account to customize your profile, list your contact preferences, and upload a portfolio of your best work.
Claim your profile
Articles by Inger Wolf
Bretland heldur Eurovision 2023
Eurovision söngvakeppnin mun fara fram í Bretland á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) í dag. Bretland mun halda keppnina fyrir Úkraínu sem vann keppnina í ár. Ástæðan er innrás Rússlands í Úkraínu og mat EBU það svo að ekki væri hægt að tryggja öryggi á keppninni ef hún yrði haldin þar. Ákvörðunina tók EBU ásamt ríkissjónvarpi Úkraínu. Bretland lenti í öðru sæti í keppninni í ár og fær því að halda keppni næsta árs.
Tvær Avengers kvikmyndir kynntar á Comic-Con
Á teiknimyndaráðstefnunni Comic-Con sem fram fór í San Diego í Bandaríkjunum um helgina tilkynnti kvikmyndarisinn Disney að tvær nýjar Marvel Avengers kvikmyndir yrðu gefnar út á næstu árum. Sú fyrri, Avengers: The Kang Dynasty og sú seinni Avengers: Secret Wars munu koma út árið 2025 en með þeim mun öðrum fasa Kvikmyndaheim Marvel (e. Marvel Cinematic Universe) ljúka. Um þrjú ár eru síðan ofurhetjukvikmyndin Avengers: Endgame var sýnd í kvikmyndahúsum víðsvegar um heiminn.
Hefur áhyggjur af eyðslu dótturinnar
Raunveruleikamamman Kris Jenner hefur áhyggjur af eyðslu yngstu dóttur sinnar, Kylie Jenner. Jenner yngri hefur lifað hátt undanfarin ár en árið 2020 keypti hún sér einkaþotu að verðmæti 9,9 milljarða íslenskra króna. Jenner á fimm hús í Kaliforníu en þau kosta samtals yfir 80 milljónir bandaríkjadali eða um 11 milljarða króna. Hún er sögð eyða í kringum 300 þúsund bandaríkjadölum í fatnað í hverjum mánuði á sig og dóttur sína sem eru um 41 milljóna króna.
Kominn með nýja kærustu?
Tónlistarmaðurinn Drake sást á snekkju með fyrirsætunni Suede Brooks í St. Tropez í Frakklandi á dögunum. Sögusagnir eru á kreiki að þau séu eitthvað meira en bara vinir, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem þau sjást saman. Brooks er fyrirsæta og YouTube-stjarna. Hún er 21 árs en tónlistarmaðurinn er 35 ára. Drake hefur birt myndbönd og myndir af fríi sínu á Instagram en Brooks sést ekki á þeim.
Fannst látin á heimili sínu
Leikkonan Shonka Dukureh, sem fór með hlutverk Big Mama Thornton í kvikmyndinni Elvis, er látin. Lögreglan í Nashville í Bandaríkjunum staðfestir þetta við fréttamiðilinn People. Hún var 44 ára að aldri. Dukureh fannst látin á baðherberginu á heimili sínu í Nashville en eitt barna hennar fann hana meðvitundarlausa þar, hljóp yfir til nágranna sem gerði lögreglu viðvart. Hún átti tvö ung börn.
Hannaði bol fyrir vararíkissaksóknara
Sveinn Snær Kristjánsson hönnuður á auglýsingastofunni Pipar\TBWA var snöggur til eftir að frétt birtist um ummæli Helga Gunnarssonar, vararíkissaksóknara um að það sé ekki skortur á hommum á Íslandi. Hann hefur nú þegar hannað bol með áletruninni „Skortur á hommum á Íslandi“ og auglýst á Instagram. „Viltu fá bol dagsins? Sérstaklega klæðilegur og hentar enn betur fyrir saksóknara,“ skrifar Sveinn í færslu við mynd af bolum.
Klikkað sirkúslag frá Reykjavíkurdætrum
Föstudagur, 22. júlí 2022 Hljómsveitin Reykjavíkurdætur sendi í dag frá sér nýtt lag. Lagið ber titilinn Sirkús og fóru dæturnar alla leið í stíliseringu fyrir lagið. Lagið munu þær frumflytja á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina.
Heard áfrýjar dómnum
Leikkonan Amber Heard hefur áfrýjað dómnum í meiðyrðamálinu sem hún tapað fyrir fyrrverandi eiginmanni sínum, leikaranum Johnny Depp. Dómurinn var kveðinn upp 1. júní og var henni gert að greiða Depp 10 milljónir bandaríkjadala til hans í skaðabætur. Lögmenn leikkonunnar greindu frá þessu í gær.
Launahæsta konan í Hollywood
Leikkonan Margot Robbie fékk greiddar 12,5 milljónir bandaríkjadala fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Barbie. Gerir það um 1,7 milljarð íslenskra króna. Til samanburðar fékk hún greiddar tíu milljónir bandaríkjadala fyrir kvikmyndina Birds of Prey. Launatékki þessi gerir hana að launahæstu konu í Hollywood í ár Upptökum á Barbie-kvikmyndinni lauk fyrr í þessarri viku en tökur höfðu staðið yfir í fjóra mánuði.
Sölvi Tryggva endurbirtir 39 þætti
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason hefur endurbirt 39 þætti úr hlaðvarpi sínu, Podcast með Sölva, á Spotify núna í júlí. Sölvi tók þá niður í fyrra eftir að tvær konur stigu fram og sökuðu hann um ofbeldi. Upphaf málsins má þó rekja til viðtals sem Sölvi tók á umræddu hlaðvarpi þar sem viðmælandinn var hann sjálfur ásamt lögmanni sínum. Í viðtalinu bar hann af sér sakir um að hafa beitt konur ofbeldi.
Seldi áritað eintak á yfir 600.000 krónur
Kona í Skotlandi seldi á dögunum gamalt eintak af annarri bók seríunnar um galdrastrákinn Harry Potter, Harry Potter og leyniklefinn, á yfir sex hundruð þúsund krónur íslenskar. Bók hafði höfundurinn, J.K. Rowling, áritað á sínum tíma. Sally Champion, býr og starfar í Edinborg í Skotlandi núna, en á tíunda áratug síðustu aldar bjó hún í Lundúnum og vann fyrir góðgerðarstofnun.
Á fjórða þúsund kvartana yfir Love Island
Bresku fjölmiðlanefndinni Ofcom barst yfir 3.600 kvartanir yfir raunveruleikaþáttunum Love Island á einni viku. Meirihluti kvartananna snýr að því hvernig karlkyns keppendur þáttanna koma fram við kvenkyns keppendur. BBC greinir frá. Samtökin Women's Aid, sem berjast gegn heimilisofbeldi í Bretlandi, vöktu nýverið athygli á varhugaverðri hegðun og orðræðu í þáttunum. Sjónvarpsstöðin ITV, sem framleiðir þáttanna, hafa látið gagnrýni Women's Aid sem vind um eyru þjóta.
Borin til grafar í gylltri kistu
Ivana Trump, fyrrverandi eiginkona Donalds Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var borin til grafar í gær. Var hún jarðsett í gylltri kistu en fyrrverandi eiginmaður hennar var viðstaddur útförina á samt núverandi eiginkonu sinni, Melaniu Trump, og börnum þeirra Ivönu. New York Times greinir frá. Útförin fór fram síðdegis í New York í gær í kaþólskri kirkju á Upper East Side á Manhattan, St. Vincent Ferrer. Saman áttu Donald og Ivana þau Ivönku, Eric og Donald yngri.
Ófeimin við sviðsljósið í New York
Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja af Sussex fóru út að borða með vinum á mánudagskvöldið í New York borg. Hjónin, sem vanalega forðast blaðaljósmyndara og sviðsljósið, brostu til ljósmyndara þegar þau gengu út af ítalska veitingastaðnum Locanda Verde á Manhattan. Fyrr um daginn höfðu þau verið í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í borginni þar sem Harry flutti ræðu í tilefni af Nelson Mandela deginum sem fagnað var vestanhafs hinn 18. júlí.
Verðlaun fyrir leik í Hjartasteini og Berdreymi
Leikarinn Blær Hinriksson hlaut í gær verðlaun á Sarajevo kvikmyndahátíðinni fyrir leik sinn í kvikmyndunum Hjartasteini og Berdreymi. Frá þessu greindi faðir hans í færslu á Facebook. „Hér á kvikmyndahátíðinni Sarajevo hefur fólk tjáð sig á mjög svo áhrifaríkan hátt um þessi verk. Mariano Biasin leikstjóri sagði í hátíðarræðu að Hjartasteinn hafi haft svo víðtæk áhrif á sig að nýjasta mynd hans sé endurkast af henni.
Barnastjarna fer í magaermi
Barnastjarnan Alana Thompson, betur þekkt sem Honey Boo Boo, mun ganga undir hnífinn í ágúst. Hún er að fara í magaermisaðgerð til að léttast. Hún er sögð vera 125 kíló og að leitast eftir því að missa 68 kíló eftir aðgerðina. Samkvæmt heildarmönnum hefur hún áhyggjur af því að þyngd hennar sé genatengd og því eigi hún enga aðra möguleika í stöðunni en að fara í aðgerð, til að ná markmiðum sínu. Hún mun gangast undir aðgerðina ásamt kærasta sínum sem er einnig með markmið um að grennast.
Snýr aftur eftir alvarleg veikindi
Tónlistamaðurinn Justin Bieber mun hefja tónleikaferð sína, Justice World á ný eftir að hafa þurft að fresta henni vegna alvarlegra veikinda. Í júní greindi Bieber frá því að hann væri með Ramsay Hunt sjúkdóminn sem er sjaldgæfur taugasjúkdómur sem veldur útbrotum, eyrnaverkjum og lömun í andliti. Fulltrúi Bieber staðfesti við Variety að hann ætli að halda tónleikaferðalagi sínu áfram í lok mánaðar.
Sú eina sem kann að búa til drama
Raunveruleikastjarnan Christine Quinn er oft miðpunktur athyglinnar í raunveruleikaþáttunum Selling Sunset. Quinn segir að það sé af því hún er sú eina sem sé að vinna vinnuna sína í þáttunum, að búa til drama og gott sjónvarp. „Mér líður eins og ég sé sú eina sem skildi verkefnið sem okkur var gefið. Ég var sú eina sem sagði: „Hey þetta er sýning, og ég ætla að gefa heiminum almennilega sýningu.“,“ sagði Quinn í viðtali við New York Times sem birtist í síðustu viku.
Ein milljón sagði upp Netflix-áskriftinni
Netflix greindi frá því í gær að alls hefði streymisveitan tapað einni milljón áskrifenda á öðrum ársfjórðungi ársins. Stjórnendur Netflix hrósa þó happi því spár þeirra gerðu ráð fyrir að streymisveitan myndi tapa tvöfalt fleiri áskrifendum á tímabilinu. BBC greinir frá.
Skilin eftir orðróm um framhjáhald
Þessi síða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar Veröld/Fólk | mbl | 19.7.2022 | 9:15 Fyrirsætan Emily Ratajkowski og Sebastian Bear-McClard eru skilin eftir fjögurra ára hjónaband. Þau giftu sig árið 2018, en þá höfðu þau einungis verið saman í nokkrar vikur. Ratajkowski og Bear-McClard eiga saman eins árs dótturina Sylvester Appolo. Samkvæmt heimildarmanni People er stutt síðan þau hættu saman og var það ákvörðun Ratajkowski sem ætlar að sækja um skilnað.
Leitar sér að konu
Leikarinn Chris Evans segist vera að einbeita sér að því að finna sér maka. Hann vill finna sér konu til að eyða ævinni með. „Mig langar að finna mér maka, einhvern sem mig langar að lifa með. Ég elska vinnuna mína og næ að sinna henni af öllum krafti. Það getur samt verið erfitt að finna einhvern sem maður treystir og getur lagt sig allan í að kynnast, “ sagði Evans í viðtali við Shondaland sem var birt fyrir helgi.
Þrumuguðinn trónir á toppnum
Ofurhetjumyndin Thor: Love and Thunder skilaði mestum miðasölutekjum um helgina vestan hafs en samtals hefur kvikmyndin, sem frumsýnd var í síðustu viku, hagnast um rúmlega 190 milljón dollurum í Norður Ameríku. Fyrstu vikuna hagnaðist myndin um 144 milljón dollara. Á hæla hennar kemur teiknimyndin Minions: The Rise of Gru, en aðsókn ungmenna í jakkafötum í kvikmyndahús víðs vegar um heiminn á kvikmyndina hefur verið talsvert í umræðunni hér á landi sem og annars staðar í heiminum.
Svipti hulunni af nýja kærastanum
Tónlistarkonan Lizzo hefur loksins svipt hulunni af nýja kærastanum. Sá heppni er leikarinn og grínistinn Myke Wright. Í apríl staðfesti tónlistarkonan að hún ætti kærasta, en hún vildi þó ekki gefa upp nafn hans. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær parið byrjaði saman, en þau höfðu verið vinir lengi og meðal annars unnið saman. Sögusagnir um samband þeirra hófust árið 2016 þegar þau voru kynnar hjá MTV, en það var ekki fyrr en á þessu ári sem Lizzo sagðist eiga kærasta.
Sótti loksins um skilnað
Leikkonan Kate Bosworth er búin að sækja um skilnað við leikstjórann Michael Polish. Ár er síðan leiðir þeirra skildu en þau hafa hingað til ekki látið verða af því að skilja formlega. Page Six greinir frá þessu. Bosworth sagði frá skilnaði þeirra hjóna á Instagram í ágúst á síðasta ári en þau höfðu verið í gift í tæplega átta ár. Bosworth er komin í samband með öðrum manni, leikaranum Justin Long, og hefur parið meðal annars komið hingað til Íslands síðan þau byrjuðu saman.
Birtir myndir úr brúðkaupinu
Söngkonan Jennifer Lopez hefur staðfest að hún og leikarinn Ben Affleck séu hjón. Þetta staðfesti hún í fréttabréfi á síðu sinni OnTheJLo. Þau giftu sig í Las Vegas í Bandaríkjunum og voru börn þeirra á meðal gesta. „Okkur tókst það. Ástin er falleg. Ástin er góð. Kemur í ljós að ástin er líka þolinmóð, tuttugu ár af þolinmæði. Við gáfum hvort öðru hringi sem við munum bera að eilífu,“ segir leikkonan en þau Affleck flugu til Las Vegas til að gifta sig.
Ben Affleck og Jennifer Lopez gift eftir aðra tilraun
Ben Affleck og Jennifer Lopez eru gift samkvæmt heimildum TMZ, sem hefur undir höndum dómsskjöl sem sýna fram á að þau hafi gengið að eiga hvort annað í Clark-sýslu í Nevada. Athöfnin á að hafa verið haldin í gær. Heimildarmaður TMZ sem er tengdur hjónunum staðfestir í samtali við miðilinn að brúðkaupið hafi átt sér stað í eyðimörk í Nevada. Affleck og Lopez trúlofuðust fyrst árið 2002 en slitu trúlofuninni árið 2004.
Rapparinn Kodak Black handtekinn í Flórída
Rapparinn Kodak Black var handtekinn á föstudaginn í Flórída-ríki í Bandaríkjunum vegna gruns um að rapparinn væri að flytja inn oxýkódón. Fréttastofa ABC greinir frá þessu á vefsíðu sinni. Lögreglan fann lykt af marijúana í bíl Kodak eftir að þeir höfðu stöðvað bílinn í umferðinni. Þeir stöðvuðu jeppann sem er fjólublár á litinn vegna þess að rúðurnar voru of dökkar miðað við lög í Flórída. Við leit í bílnum fann lögreglan lítinn poka með 31 oxýkódón töflum og 75 þúsund Bandaríkjadali í reiðufé.
Flúði Los Angeles eftir Ben Affleck
Leikkonan Ana de Armas, fyrrverandi kærasta Bens Afflecks flúði Los Angeles þegar parið hætti saman, en henni þótti stanslausa fjölmiðlaathyglin svo hræðileg að hún flutti til New York. Armas og Affleck kynntust í nóvember 2019 við tökur á kvikmyndinni Deep Water. Í kjölfarið kviknaði neisti milli leikaranna, en þau hættu saman í ársbyrjun 2021 eftir tæplega árs samband. Armas opnaði sig nýlega í viðtali við Elle þar sem hún lýsti upplifun sinni af borg englanna, en hún var búsett þar í sjö ár.
Lést eftir að hafa dottið niður stiga
Ivana Trump, fyrrverandi eiginkona Donalds Trumps, lést vegna áverka sem hún hlaut af falli niður stiga. ABC greinir frá því að Ivana hafi fundist meðvitundarlaus neðst í stiga á heimili sínu í New York-borg á fimmtudag. Dánarorsök hennar eru áverkar sem hún hlaut af fallinu en ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
Sagður halda Hammer uppi
Leikarinn Robert Downey Jr. er sagður hafa stutt leikarann Armie Hammer fjárhagslega undanfarið árið. Greint var frá því síðustu helgi að Hammer byggi á Cayman-eyjum og ynni á hóteli við að ráðleggja ferðamönnum sem heimsækja eyjuna. Hammer var á síðasta ári sakaður um kynferðisbrot gegn konu auk þess að hafa sent ofbeldisfull og klámfengin skilaboð. Neitaði hann öllum ásökunum en sagði sig frá öllum hlutverkum sem hann hafði þegar fengið. Seinna fór hann í áfengis- og fíkniefnameðferð.
Helgi Björns í beinni um verslunarmannahelgina
Helgi Björnsson heimsækir alla landsmenn um verslunarmannahelgina en hann verður með tónleika í beinu streymi frá Tjörninni á laugardagskvöldið. „Við gerðum þetta í fyrra og það tókst vel. Okkur langar að gera þetta aftur, einfaldlega vegna þess að það er margt fólk sem hefur gaman af því að geta fengið okkur til sín, hvar sem það er statt á landinu eða útí heimi. Allir hafa möguleika á því að skemmta sér með okkur og sínum vinum og vandamönnum“ segir Helgi.
Markmiðið að kvænast Kardashian
Grínistinn Pete Davidson hefur hug á því að kvænast kærustu sinni, raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian. Davidson og Kardahsian hafa verið í samband síðan í október á síðasta ári og hefur alvara færst í sambandið. Davidson ræddi sambandið í spjallþættinum Kevin Hart, Hart to Heart, sem kom út í vikunni. Spurður hvort hann langi til að kvænast í framtíðinni sagði Davidson: „100 prósent.
Sér ekki eftir sambandinu við Lopez
Fyrrum hafnaboltakapinn Alex Rodriquez eða A-Rod segist ekki sjá eftir sambandinu við Jennifer Lopez. Hann talaði um sína fyrrverandi við Mörtu Stewart í hlaðvarpsþætti hennar, The Martha Stewart Show. „Það sem ég get sagt ykkur um Jennifer er að hún er hæfileikaríkasta manneskja sem ég hef verið í kringum. Dugnaðarforkur og mér finnst hún vera besti listamaður í heiminum sem er á lífi í dag,“ sagði Rodriquez um Lopez. Þau byrjuðu fyrst að hittast í febrúar 2017 og voru saman í rúm fjögur ár.
Skýrslan lætur Meghan líta illa út
Konunglegir álitsgjafar telja líklegt að drottningin vilji ekki birta niðurstöður rannsóknar á meðferð hirðarinnar á Meghan og Harry vegna þess hversu illa Meghan kemur út úr rannsókninni. Drottningin skipaði að úttekt færi fram á vegum óháðra aðila eftir að Harry og Meghan komu fram í margnefndum Opruh Winfrey þætti og sakaði hirðina um einelti og fordóma. Nú hefur hins vegar verið tilkynnt að niðurstöður rannsóknarinnar munu aldrei koma fyrir sjónar almennings.
Ósk Heard um ný réttarhöld synjað
Leikkonan Amber Heard fékk ósk sína um að réttarhöldin í máli leikarans Johnny Depp gegn henni verði gerð ómerk ekki uppfyllta. Lögmenn Heard höfðu óskað eftir því eftir að í ljós kom að einn í kviðdómnum var ekki sá sem hann sagðist vera. Sex vikur eru liðnar síðan dómur féll í meiðyrðamáli Depp gegn Heard, en þar var Heard dæmd til að greiða honum 10 milljónir bandaríkjadala í skaðabætur. Vann hún einn ákæruliðinn og var hann dæmdur til að greiða henni 2 milljónir bandaríkjadala.
Stiller og Affleck á landinu
Blaðamaðurinn Eiríkur Jónsson greinir frá því á vefsíðu sinni að nafnarnir Ben Stiller og Ben Affleck, báðir stórleikarar í Hollywood, séu hér á Íslandi. Segir Eiríkur að Affleck hafi sést á Skólavörðustíg í Reykjavík með síma upp að eyranu og í grennd hafi verið bíll frá framleiðslufyrirtækinu True North. Eiríkur greinir einnig frá því að Affleck hafi sést í Flatey á Breiðafirði ásamt íslenska leikaranum Ólafi Darra Ólafssyni og hafi þeir kollegar setið að snæðingi á hóteli.
Hætt með uppljóstraranum
Tónlistarkonan Grimes og uppljóstrarinn Chelsea Manning eru hættar saman. Parið hafði verið að hittast síðan í mars á þessu ári. Page Six greinir frá. Grimes og Manning byrjuðu að hittast eftir að leiðir Grimes og barnsföður hennar Elon Musk skildu í upphafi árs 2022. Þá hafði Page Six heimilidr fyrir því að samband kvennanna tveggja væri orðið alvarlegt og þær farnar að búa saman í Austin í Texas.
Spacey lýsti yfir sakleysi sínu
Kevin Spacey á leiðinni fyrir dóminn í morgun. AFP/Justin Tallis Hollywood-stjarnan Kevin Spacey lýsti yfir sakleysi sínu fyrir dómi í London í morgun. Hann er sakaður um kynferðisbrot gagnvart þremur mönnum. Spacey var ákærður í fjórum liðum og ná meintu brotin allt að 17 ár aftur í tímann. Hann hefur unnið til tvennra Óskarsverðlauna á ferli sínum fyrir leik, en á árunum 2014 og 2015 var hann listrænn stjórnandi í leikhúsinu Old Vic í London.
Strax flutt inn saman?
Stjórnmálaráðgjafinn Huma Abedin setti hús sitt í austur Hampton í New York ríki í Bandaríkjunum á leigu í júní mánuði. Greint var frá því í vikunni að hún væri komin í samband með leikaranum og leikstjóranum Bradley Cooper, og því velta bandarískir miðlar fyrir sér hvort parið sé strax farið að búa saman. The New York Post greinir frá. Abedin keypti húsið í nóvember árið 2020 þegar hún stóð í skilnaði við stjórnmálamanninn Anthony Weiner.
Enn og aftur nakin á Instagram
Tónlistarkonan Britney Spears virðist vita fátt betra en að birta myndir af sér nakinni á Instagram. Í þetta sinn birti hún mynd af sér að synda í sundlaug, án allra klæða. „Syndum áfram... syndum áfram,“ skrifaði Spears við myndirnar og vísaði þar mögulega í Disney Pixar myndina Leitin að Nemó. Líkt og vanalega og til að fylgja reglum Instagram um nekt, faldi hún kynfæri sín, rass og brjóst með glitrandi strikum.
Konan og börnin verða eftir á Englandi
Fótboltamaðurinn Wayne Rooney flytur einn til Bandaríkjanna til að þjálfa fótbolta. Eiginkona hans, Coleen var ekki hrifin af því að búa Bandaríkjunum og fann fyrir mikilli heimþrá. Fótboltaliðið D.C. United hefyr ráðið hann til sín en hann spilaði fyrir liðið 2018 til 2020. Þá bjó öll fjölskyldan með honum í Bandaríkjunum. Rooney segir þau hjónin hafa ákveðið að hann færi einn yfir hafið en hún og börnin yrðu eftir heima á Englandi.
Brast í grát eftir Emmy-tilnefningar
Þessi síða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar Veröld/Fólk | mbl | 13.7.2022 | 13:11 | Uppfært 13:46 Leikkonan Sydney Sweeney hlaut tvær Emmy–tilnefningar sem besta leikkonan í aukahlutverki, fyrir leik sinn í Euphoria og The White Lotus. Hún er yfir sig ánægð með tilnefningarnar og birti myndskeið af sér á Instagram þar sem hún hringir í mömmu sína eftir að hafa heyrt fréttirnar.
Stelpurnar okkar slá í gegn á TikTok
Þessi síða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar Veröld/Fólk | mbl | 13.7.2022 | 11:10 Þó íslenska kvennalandsliðið sé á fullu að undirbúa sig undir leik sinn gegn Ítalíu á Evrópumótinu í fótbolta sem fram fer á Bretlandi um þessar mundir hafa þær haft tíma til að slá á létta strengi. Stelpurnar gerðu skemmtilegt myndband á TikTok í vikunni sem Karólína Lea Vilhjálmsdóttir birti á reikningi sínum.
Kominn með kærustu
Leikarinn Bradley Cooper og stjórnmálaráðgjafinn Huma Abedin eru að hittast. Anna Wintour ritstjóri Vouge kynnti parið fyrir hvort öðru. Samkvæmt heimildarmanni PageSix eru þau búin að vera stinga saman nefjum í einhverja mánuði. Abedin var varaformaður kosningarbaráttu Hillary Clinton 2016 þegar hún bauð sig fram til embætti forseta Bandaríkjanna. Hún starfaði áður sem staðgengill starfsmannastjóra Clinton þegar hún var utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Sendi sjálfri sér ástarbréf
Þessi síða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar Veröld/Fólk | mbl | 13.7.2022 | 6:29 Söngkonan og fatahönnuðurinn Jessica Simpson skrifaði sjálfri sér ástarbréf í tilefni af 42 ára afmæli sínu á dögunum. Hún segist vera þakklát fyrir það sem lífið hefur kennt henni á þessum fjórum áratugum og því sem það hefur gefið henni. „Litla ungfrú 42 ára, sjá þig teygja þig í tunglsljósið og hlaða þig. Þú geislar af vissu og hjartað þitt glóir,“ segir Simpson.
Tveir Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna
Tveir Íslendingar eru tilnefndir til Emmy verðlauna í ár. Það eru þeir Matthías Bjarnason og Daði Einarsson. Saman unnu þeir að tæknibrellum í Netflix þáttunum The Witcher. Daði hlaut BAFTA-verðlaun fyrir tæknibrellur í fyrsta þætti þáttaraðarinnar, en hann hlaut einnig Emmy-verðlaun árið 2002. Daði og Matthías vinna báðir hjá íslenska fyrirtækinu RVX. Tilnefningar til verðlaunanna voru birtar í dag, en verðlaunahátíðin fer fram þann 12. september.
Meira Kardashians í september
Þessi síða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar Veröld/Fólk | mbl | 12.7.2022 | 20:10 Önnur sería af þáttaröðinni The Kardashians kemur út hinn 22. september, á Hulu og Disney+. Raunveruleikastjörnurnar deildu stiklu úr komandi þáttaröð á samfélagsmiðlum hjá sér í vikunni. Af stiklunni að dæma virðast aðdáendur eiga von á góðu. Í stiklunni má sjá brúðkaupsundirbúning og brúðkaupið sjálft hjá Kourtney Kardashian og Travis Barker.
Squid Game með 14 tilnefningar
Aldrei hefur þáttaröð á öðru tungumáli en ensku hlotið jafn margar tilnefningar til Emmy-verðlaunanna og þættirnir Squid Game. Squid Game, sem eru á kóresku, hlaut alls 14 tilnefningar en tilkynnt var um hvaða þættir og sjónvarpsmyndir hlutu tilnefningar í dag. Emmy verðlaunin verða afhent hinn 12. september næstkomandi. Fyrirkomulag verðlaunahátíðarinnar hefur ekki verið gert ljóst en heimsfaraldur kórónuveiru hefur haft áhrif á hátíðina undanfarin tvö ár.
Piparsveinninn genginn út
Þessi síða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar Veröld/Fólk | mbl | 12.7.2022 | 12:45 Fyrrum piparsveinninn Tyler Cameron er kominn á fast. Cameron skaust upp á stjörnuhimininn sem einn heitasti piparsveinn sögunnar eftir þátttöku sína í fimmtándu seríu raunveruleikaþáttanna Bachelorette. Þar kepptist hann um hjarta Hönnuh Brown. Nú virðist Cameron loksins hafa fundið ástina, en sú heppna er fyrirsætan Paige Lorenze.
Romeo Beckham á lausu
Þessi síða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar Veröld/Fólk | mbl | 12.7.2022 | 10:20 Fótboltamaðurinn Romeo Beckham, sonur Victoriu og David Beckham, er á lausu. Beckham og fyrirsætan Mia Regan hafa slitið þriggja ára sambandi sínu. Regan býr í London og starfar þar en Beckham spilar fótbolta í Miami í Bandaríkjunum. Fjarsambandið var ekki að virka fyrir þau enda bæði ung að aldri, aðeins 19 ára gömul.
Show More
loading
Actions
Is this you?
As a journalist, you can create a free Muck Rack account to customize your profile, list your contact preferences, and upload a portfolio of your best work.Get in touch with Inger
Contact Inger, search articles and posts on X, monitor coverage, and track replies from one place.
Learn more about Muck Rack