Is this you? As a journalist, you can create a free Muck Rack account to customize your profile, list your contact preferences, and upload a portfolio of your best work.
Claim your profile
Articles by Jón Atli Jónasson
Broken
This extraordinary crime novel debuted 2022 in the authors’ native Iceland, but is now finally available in an English Language translation. Broken is a deeply thought-provoking narrative, written in an urgent present-tense style making the reader pause to collate and evaluate the proceedings as well as to take a breath.
Opnar sig um íslensku stelpurnar
Love Island-stjarnan Ekin-Su hefur nú opnað sig um atvikið umtalaða þegar tvær íslenskar konur sáust stíga upp í leigubíl í London með kærasta hennar, Davide Sanclimenti. Parið vann áttundu þáttaröð Love Island og hefur notið mikilla vinsælda í sumar. Ekin-Su var stödd í Los Angeles þegar atvikið átti sér stað, en Love Island-samfélagið hefur legið á hliðinni síðan og hafa aðdáendur beðið spenntir eftir því að Ekin-Su tjáði sig um málið.
Þessi fara með hlutverk Katrínar og Vilhjálms
Búið er að gefa upp hvaða leikarar fara með hlutverk Katrínar hertogaynju af Cambridge og Vilhjálms Bretaprins í sjöttu þáttaröð The Crown á Netflix. Hin 19 ára Meg Bellamy mun fara með hlutverk Katrínar á háskóla árum hennar en tveir leikarar munu fara með hlutverk Vilhjálms. BBC greinir frá en þar má sjá myndir af leikurum þremur. Ed McVey, sem er 21 árs, og Rufus Kampa, sem er 16 ára, munu fara með hlutverk hans. Tökur á sjöttu þáttaröð munu hefjast nú í haust, en þetta verður síðasta þáttaröðin.
Gráti nær á minningartónleikum
Foo Fighters-söngvarinn Dave Grohl mátti hafa sig allan við að halda aftur af tárunum á minningartónleikum sveitarinnar um Taylor Hawkins, trommuleikara hennar til aldarfjórðungs en Hawkins fannst látinn á hótelherbergi í Bogotá í Kólumbíu í mars þar sem til stóð að sveitin spilaði á tónlistarhátíð. Hann stóð þá á fimmtugu. Minningartónleikarnir voru haldnir í gær á Wembley-leikvanginum í Lundúnum og seldust 75.000 miðar á tónleikana upp.
Beint á djammið eftir sambandsslitin
Leikarinn Leonardo DiCaprio virðist njóta þess að vera nýlega orðinn einhleypur. Sást leikarinn á vinsælum skemmtistað í New York borg á þriðjudagskvöld. Page Six greinir frá. Skemmtistaðurinn sem um ræðir er einkaklúbburinn The NedNoMad og kemst ekki hver sem er inn á þann klúbb. Greint var frá því fyrr í vikunni að DiCaprio og fyrirsætan Camila Morrone væru hætt saman eftir tæplega fimm ára samband, en þau höfðu ekki sést saman opinberlega síðan 4. júlí.
Jane Fonda með krabbamein
Leikkonan og baráttukona Jane Fonda hefur greinst með krabbamein. Frá þessu greinir hún á Instagram-reikningi sínum, þar sem hún segir jafnframt að góðar líkur séu á bata en 80% þeirra sem greinist með eitilfrumuæxli lifi af. „Svo ég upplifi mig sem afar heppna,“ skrifar leikkonan, sem verður 85 ára í desember, og bætir við að hún sé þar að auki með heilbrigðistryggingu og hafi aðgengi að bestu læknum og meðferðum sem standi til boða.
Dró demantshálsmen úr rassaskoru Depp
Fyrirsætan Kate Moss rifjaði á dögunum upp óvenjulegan atburð frá árinu 1995 þegar fyrrverandi kærasti hennar, leikarinn Johnny Depp, gaf henni sitt fyrsta demantshálsmen. Það þykir kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Moss þurfti að draga hálsmenið úr rassaskoru Depp. Í myndbandinu Life in Looks sem Moss gerði fyrir breska Vogue tímaritið sagði hún frá því þegar Depp gaf henni undurfagra hálsmenið sem hún var með á CFDA tískuverðlaununum árið 1995.
Hörð rifrildi Brady og Bündchen valda áhyggjum
Fyrirsætan Gisele Bündchen hefur nú yfirgefið fjölskylduheimili sitt í Tampa, Flórída og farið til Kosta Ríka í kjölfar harðra rifrilda við eiginmann sinn, ruðningskappann Tom Brady. Samkvæmt heimildum Page Six snúast rifrildin um ákvörðun Brady að hefja aftur feril sinn í NFL-deildinni í amerískum fótbolta. „Það hafa verið vandræði í hjónabandi þeirra vegna ákvörðunar Brady um að hefja aftur störf í NFL-deildinni.
Segir klámið hafa eyðilagt fjölskylduna
Fjöllistamaðurinn Kanye West skrifaði fjölmargar færslur á Instagram reikningi sínum í gær, fimmtudag, en þeim hefur nú verið eytt. Í færslunum fjallaði hann meðal annars um fyrrverandi tengdamóður sína, Kris Jenner, ásamt Hillary Clinton, Mark Zuckerberg og Charlamagne tha God. Allt er þetta fólk sem West hefur átt í deilum við áður. Í einni færslunni ávarpaði West fyrrverandi aðstoðarmann Kylie Jenner, Victoria Villarroel.
Hildur aftur orðuð við Óskarsverðlaun
Hildur Guðnadóttir tónskáld þykir líkleg til að verða tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir tónlistina í kvikmyndinni Tár sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í gær. Leikkonan Kate Blanchett fer með aðalhlutverk og stóðu áhorfendur í sex mínútur og klöppuðu að frumsýningu lokinni í gær. Todd Field leikstýrir Tár sem fjallar um þýskt tónskáld, Lydiu Tár.
Dagbókarskrif Meghan vekja ótta
Meghan hefur gefið til kynna að hún hélt dagbók á meðan hún var starfandi meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar. Þær fréttir hafa valdið ákveðnum titringi innan hallarinnar. Sérfræðingur í konungsfjölskyldunni, Margaret Holder, segir rík ástæða sé til þess að hafa áhyggjur. „Hún hefur haft nægan tíma innan fjölskyldunnar til þess að komast að ákveðnum leyndarmálum sem gætu valdið hneykslan eða særindi fyrir drottninguna og aðra meðlimi,“ segir Holder.
Sér eftir báðum hjónaböndunum
Fimmtudagur, 1. september 2022 Madonna segist vera með kynlíf á heilanum, hún sér eftir báðum hjónaböndunum sínum og vill vinna aftur með Britney Speares. Hún svaraði 50 spurningum um lífið frá aðdáendum sínum í tilefni af nýjustu plötunni sinni í Youtube myndbandi.
Hér tekur þú þátt í Ertu viss?
Fyrsti þáttur af spurninga- og skemmtiþættinum Ertu viss? verður í beinni útsendingu hér á mbl.is þegar klukkan slær 19.00. Smelltu hértil að skrá þig til leiks! Stjórnendur þáttarins eru skemmtilegustu systur í heimi, þær Eva Ruza og Tinna Miljevic, sem hafa verið í startholunum síðustu daga og tilbúnar að hefja leika.
Patrekur lætur Birgittu Líf heyra það
Patrekur Jamie, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, virðist ekki ánægður með ummæli Birgittu Lífar Björnsdóttur, raunveruleikastjörnu og markaðsstjóra Word Class, í Ísland í dag í vikunni. Hann segir orð hennar um að þáttur þeirra stelpnanna, LXS á Stöð 2, sé ekki fyrstu raunveruleikaþættirnir á Íslandi án handrits, það hafi verið þættirnir Æði sem hann er í.
Borist kvörtun vegna Lil Curly
Neytendastofu hefur borist kvörtun vegna myndbanda áhrifavaldsins Arnars Gauta Arnarssonar, betur þekktur sem Lil Curly, á TikTok. Þetta staðfestir Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, í samtali við mbl.is. Þórunn segir að kvörtunin hafi borist nú í vikunni og ekki sé búið að taka hana fyrir eða ákveða hvað skuli gera í málinu.
Sér eftir heimildarmyndunum
Söngkonan Demi Lovato sér eftir því að hafa gert heimildarmyndir um líf sitt. Hún hefur barist við fíkn í gegnum tíðina og fest þá baráttu á filmu. Á síðustu tíu árum hafa þrjár myndir komið út. „Ég er án gríns virkilega þreytt á því að horfa á sjálfa mig og ég held að annað fólk sé það líka. Ef fólk er ekki búið að fá nóg af mér þá má það horfa á tónlistarmyndböndin mín. Ég vildi að ég hefði beðið með að taka upp heimildarmynd þar til að ég væri koimin með mín mál á hreint.
25 ár frá andláti Díönu prinsessu
Í dag eru 25 ár liðin frá dauða Díönu prinsessu. Díana sem jafnan var kölluð prinsessa fólksins lést aðeins 36 ára að aldri í bílslysi í París. Díana sinnti ýmsum góðgerðamálum af miklum móð. Eftirminnilegt er þegar hún gekk um jarðsprengjusvæði í fullum skrúða til þess að stuðla að banni á notkun jarðsprengja. Þá lagði hún sérstaka áherslu á að beina sjónum almennings að málefnum jaðarsetts fólks til dæmis heimilislausra og þeirra sem þjáðust af alnæmi.
Látin 32 ára að aldri
Suður-Afríska leikkonan Charlbi Dean er látin 32 ára að aldri. Dean lést á sjúkrahúsi í New York í Bandaríkjunum í gær, en dánarorsök hennar er enn ókunn þó sagt hafi verið að hún hafi látist skyndilega. Dean fór með hlutverk í kvikmyndinni Triangle of Sadness sem hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni Cannes nú í vor. Þar lék hún á móti leikaranum Woody Harrelson. Fyrirhugað er að sýna kvikmyndina á kvikmyndahátíðum í Torontó og New York seinna á þessu ári. Dean var fædd í Höfðaborg 5.
Auglýsing Gorbatsjovs slær aftur í gegn
Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, lést í gær 91 árs gamall. Hans hefur verið minnst um allan heim í gærkvöldi og í dag. Gorbatsjov var fjölhæfur maður og breytti ekki aðeins gangi sögunnar eins og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, komst að orði, heldur var hann líka afbragðs leikari eins og sjá má í þessari auglýsingu fyrir Pizza Hut sem hann lék í árið 1998.
Hættur með ungu kærustunni
Hjartaknúsarinn Leonardo DiCaprio og fyrirsætan Camila Morrone eru hætt saman eftir tæplega fimm ára samband. Þetta herma heimildarmenn People en forsvarsmenn parsins neituðu að tjá sig um málið. Parið sást fyrst stinga saman nefjum í Aspen í Colorado í Bandaríkjunum í janúar 2018. Þau komu svo fram opinberlega sem par þegar þau sátu saman á fremsta bekk á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2020. Þau voru síðust mynduð saman í júlí.
Kveður sumarið með bombumynd
Veröld/Fólk | mbl | 31.8.2022 | 6:45 Bandaríska leikkonan Sharon Stone kvaddi sumarið með sjóðandi heitri speglasjálfu. Hin 64 ára gamla leikkona hefur verið ófeimin við að deila myndum af sér í sundfötum í sumar. „Af hverju kemst ég alltaf í form undir lok sumars,“ skrifaði Stone undir myndina. Frægir vinir hennar á Instagram fengu ekki nóg af myndinni og kepptust um að skrifa sniðugar athugasemdir við hana.
Opnar sig um krabbameinsgreiningu
Breska sjónvarpskonan Sarah Beeny greindi frá því í vikunni að hún hafi greinst með brjóstakrabbamein. Beeny hefur hafið meðferð, en hún er 50 ára að aldri. Beeny er hvað þekktust fyrir að vera sérfræðingur í fasteignum og hefur haldið úti þáttunum Help! My House is Falling Down og Sarah Beeny's New Life In The Country. Sjónvarpskonan greindi frá krabbameinsgreiningunni í viðtali við Telegraph í vikunni og sagðist þar hafa brotnað niður eftir að hafa fengið greininguna.
Höfðar meiðyrðamál gegn Netflix
Rachel DeLoache Williams, rithöfundur og ljósmyndari, hefur höfðað meiðyrðamál gegn streymisveitunni Netflix vegna þáttaraðarinnar Inventing Anna. Williams var á meðal þeirra raunverulegu manneskja sem túlkaðar voru í þáttunum sem fjalla um einstakt mál Önnu Delvey sem einnig er þekkt undir nafninu Anna Sorokin. Williams segir að hún hafi verið túlkuð í neikvæðu ljósi í þáttunum og að hún virki gráðug, snobbuð og óheiðarleg. Netflix hefur ekki sent frá sér tilkynningu vegna málsins.
Vill ekki deyja í Bandaríkjunum
Enski tónlistarmaðurinn Ozzy Osbourne ætlar að flytja aftur til heimalandsins eftir að hafa búið í hinni sólríku Kaliforníu í Bandaríkjunum í mörg ár. Eiginkona hans, Sharon Osbourne, ætlar að flytja með honum og segja þau í viðtali við Guardian að flutningarnir hafi ekkert með heilsu hans að gera, heldur eru þau komin með nóg af skotárásum í Bandaríkjunum. „Ég vissi að fólk myndi halda það. Það er ekki ástæðan. Það er bara kominn tími til. Bandaríkin hafa breyst svo mikið.
Drullað yfir íslensku stelpurnar á samfélagsmiðlum
Love Island-samfélagið er á hliðinni eftir að tvær íslenskar konur, þær Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir og Aníta Gunnarsdóttir, sáust stíga upp í leigubíl með öðrum sigurvegara síðustu þáttaraðar Love Island, Davide Sanclimenti. Matthildur og Aníta hafa fengið að finna fyrir því á samfélagsmiðlum þar sem ófögrum orðum er farið um þær á Instagram reikningum þeirra.
Segist ekki lifa á mömmu og pabba
Ireland Baldwin, dóttir Alec Baldwin og Kim Basinger, segist ekki lifa á mömmu sinni og pabba. Hún vinni fyrir sínum launum, en starf hennar felst aðallega við að finna heimili fyrir dýr og að bjarga þeim. Baldwin svaraði spurningum um hvort hún væri eitthvað að vinna á TikTok, en svokölluð Internettröll hafa sakað hana um að lifa af ríkum foreldrum sínum. Baldwin sagði einnig að hún og kærasti hennar stefndu að því að opna fljótlega kaffihús, vínbar og litla verslun.
Ný plata á leiðinni frá Swift
Söngkonan Taylor Swift tilkynnti á MTV VMA–verðlaunahátíðinni að ný plata væri væntanleg frá henni í haust. Fyrirhugað er að platan komi út hinn 21. október næstkomandi. Swift tilkynnti um plötuna þegar hún tók við verðlaunum fyrir besta tónlistarmyndband ársins. „Ég segi ykkur meira á miðnætti,“ sagði Swift en platan heitir einmitt Midnights. Hún birti færslu á Instagram þar sem hún segir frá nýju plötunni. Plötuna skrifaði þegar hún hefur legið andvaka.
Lætur tröllin heyra það
Þessi síða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Sjá nánar Veröld/Fólk | mbl | 29.8.2022 | 16:06 Söngkonan Lizzo sendi skýr skilaboð til þeirra sem hafa gagnrýnt hana í gegnum árin þegar hún tók við verðlaunum á VMA-verðlaunahátíðinni sem fór fram í Bandaríkjunum á sunnudag. Lizzo sagðist ekki hafa tíma til að svara öllu þessu rugli, hún væri of upptekin við að vinna. „Núna til þeirra sem hafa verið að segja eitthvað slæmt um mig í miðlum. Vitið þið hvað, ég ætla ekki segja neitt.
Perry gerði allt vitlaust
Mánudagur, 29. ágúst 2022 Ljósmynd/Norwegian Cruise Line Söngkonan Katy Perry var heldur betur glæsileg þegar hún tróð upp um borð í Norwegian Prima á laugardagskvöld. Söngkonan er guðmóðir skipsins en því var formlega gefið nafn við hátíðlega athöfn í Reykjavík um helgina. Hér má sjá myndir frá viðburðinum.
Perry gerði allt vitlaust í Hörpu
Mánudagur, 29. ágúst 2022 Ljósmynd/Norwegian Cruise Line Söngkonan Katy Perry var heldur betur glæsileg þegar hún tróð upp í Eldborgarsal Hörpu á laugardagskvöld. Söngkonan er guðmóðir skipsins Norwegian Prima en því var formlega gefið nafn við hátíðlega athöfn í Reykjavík um helgina. Hér má sjá myndir frá viðburðinum.
Reis upp eins og engill
Mánudagur, 29. ágúst 2022 Tónlistarkonan Bríet reis upp eins og engill í Eldborgarsal Hörpu á föstudag þegar hún skemmti gestum á skemmtiferðaskipinu Norwegian Prima. Öllu var til tjaldað í Hörpu sem fylltist í tvígang þetta kvöld. Auk Bríetar spilaði Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir gesti og Íslenski dansflokkurinn sýndi verk.
Love Island-stjarna djammaði með íslenskum konum
Tvær íslenskar konur sáust stíga upp í leigubíl með einum af sigurvegara raunveruleikaþáttanna Love Island, Davide Sanclimenti, í London á Bretlandi á laugardagskvöld. Sun greinir frá og segir konurnar vera Matthildi Ylfu Þorsteinsdóttur og Anítu Gunnarsdóttur. Davide og þær Matthildur og Aníta sáust fara upp í leigubíl með honum eftir að bardagakeppni lauk í O2 í London. Annar karlmaður fór með þeim og er talið að hann sé vinur Davide.
Bíll Díönu seldist á 108 milljónir
Bíll af gerðinni Ford escort RS turbo, sem var í eigu Díönu prinsessu, seldist á uppboði fyrir 650 þúsund pund, eða tæplega 108 milljónir íslenskra króna. Díana ók bílnum í um þrjú ár, frá því í ágúst 1988. Fyrstu myndirnar af henni í bifreiðinni voru teknar fyrir utan verslanir í Chelsea og Kensington hverfi Lundúnaborgar. Skráningarnúmer bifreiðarinnar er C462FHK, og var hún seld á uppboði á vegum fyrirtækisins Silverstone.
Weeknd leikstýrir nýrri þáttaröð
Abel Tesfaye, betur þekktur undir listamannsnafninu The Weeknd, og Sam Levinson, höfundur geysivinsælu þáttaraðarinnar Euphoria, munu saman leikstýra nýju þáttaröðinni The Idol sem verður sýnd á efnisveitunni HBO Max. Leikonan Lily Rose Depp fer með aðalhlutverk á móti The Weeknd sjálfum. Í þáttunum er áhorfandinn leiddur í undirheima Hollywood og skyggnst á bakvið sýningartjöldin.
Enn kominn með nýja kærustu
Raunveruleikastjarnan Scott Disick og Kimberly Stewart virðast vera komin í samband. Parið sást leiðast tvisvar sinnum í þessari viku. Fóru þau meðal annars saman út að borða í Santa Monica á sunnudag til að fagna afmæli hennar. Samkvæmt heimildarmönnum Us Weekly eru þau búin að vera hittast í nokkra mánuði og virðast hugfangin hvort af öðru. Þau hafa þó ekki opinberað að þau séu í sambandi. Stewart er dóttir tónlistarmannsins Rod Stewart.
Pussy Riot til landsins í nóvember
Rússneski listahópurinn Pussy Riot er á leið til landsins í nóvember á þessu ári. Verður hópurinn með leiksýningu, listgjörning og tónleika í Þjóðleikhúsinu. Sýningin er skipulög í samhengi við fyrstu yfirlitssýningu Pussy Riot sem opnar í Kling & Bang í sama mánuði. Sýningin var að hluta til æfð og þróuð í Þjóðleikhúsinu nú á vordögum rétt eftir að Masha Alyokhina forsprakki hópsins kom sér hingað undan klóm rússnesks óréttlætis.
Gagnrýnd en samt á toppnum
Hlaðvarpsþátturinn Archetypes, í stjórn Meghan hertogaynju af Sussex, var vinsælasti hlaðvarpsþátturinn á Spotify í Bandaríkjunum í gær. Náði hún þeim merka áfanga að vera vinsælli en þáttur Joes Rogan sem setið hefur á toppnum um langa hríð. Þátturinn hefur verið gagnrýndur harðlega og í Bretlandi var Meghan sérstaklega gagnrýnd. Meghan er gift Harry Bretaprins. Í þættinum spjallaði Meghan við tennisstjörnuna Serenu Williams og stefnir á að tala við fleiri konur á næstu vikum.
Vilja stækka Tjarnarbíó
Tjarnarbíó og SL (Bandalag sjálfstæðra leikhúsa) hafa sett af stað samfélagsmiðlaherferð til að vekja athygli á að Tjarnarbíó, heimili sjálfstæðra sviðslista og helsta sýninga- og vinnurými sjálfstætt starfandi atvinnuleikhópa, hafi ekki lengur burði til að sinna allri senunni. Fram kemur í tilkynningu að á síðustu árum hafi sviðslistafólki fjölgað verulega á Íslandi og fjölbreytni aukist.
Útför Eiríks Guðmundssonar í dag
Útför útvarpsmannsins og rithöfundarins Eiríks Ómars Guðmundssonar fer fram í Hallgrímskirkju klukkan 13 í dag. Eiríkur lést hinn 8. ágúst síðastliðinn 52 ára að aldri. Eftir grunnskólanám í Bolungarvík fór Eiríkur til náms í Menntaskólanum við Sund og útskrifaðist þaðan vorið 1988. Hann lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og MA-prófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla 1995.
Elton John og Britney í eina sæng
„Það er ansi svalt að ég fæ að syngja með einum klassískasta manni okkar tíma,“ sagði Spears fyrir útgáfuna. Lagið er samsett úr þremur lögum Johns, Tiny Dancer, The One og Don't Go Breaking My Heart.
Aron Mola og Sigrún Ósk kynnar í Idol
Leikarinn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola, og fjölmiðlakonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir verða kynnar Idol-stjörnuleitar sem hefur göngu sína á Stöð 2 í haust. Nú á dögunum kláruðust áheyrnaprufur með framleiðendum og hefur verið lokað fyrir skráningar. Þau Sigrún og Aron segjast bæði vera ákaflega spennt fyrir þáttunum. „Ég hlakka mjög mikið til að fá að taka þátt í þessu Idoö ævintýri enda aðdáandi þáttanna til margra ára.
Hundar flykktust út í Gróttu
Hundar og eigendur skemmtu sér vel í hundahlaupi í Gróttu, sem var liður í Íþróttaveislu Landssambands ungmennafélaga (UMFÍ) og í tilefni af hundrað ára afmæli Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK). Í boði voru tvær hlaupaleiðir, annars vegar fimm kílómetra leið með tímatöku og hins vegar tveggja kílómetra leið, fyrir þá sem vildu fara í rólegan göngutúr.
Stundaði ekki kynlíf í hálft ár
Breski leikarinn Andrew Garfield stundaði föstur og neitaði sér um kynlíf í nokkra mánuði á meðan hann var að undirbúa sig fyrir hlutverk prests í Jesúítareglunni í kvikmyndinni Silence sem kom út árið 2016. „Maður endar á ansi djúpum stað. Svona ferli breytir manni. Ég stundaði ekki kynlíf í sex mánuði og ég fastaði mikið. Það var ansi klikkuð upplifun að neita mér um kynlíf og mat,“ sagði leikarinn í hlaðvarpinu WTF with Marc Maron.
Fær slæma útreið í breskum fjölmiðlum
Breskir álitsgjafar fara hörðum orðum um nýjasta útspil Meghan Markle, hlaðvarpið Archetypes. Hillary Rose pistlahöfundur The Times lætur ekki sitt eftir liggja: „Ég hefði átt að kýla mig meðvitundarlausa með bókinni Finding Freedom en í staðinn hlustaði ég á hlaðvarpsþáttinn hennar Meghan Markle í 57 mínútur og 28 sekúndur,“ segir Rose.
Byrjaði að misnota ópíóða 13 ára
Söngkonan Demi Lovato minnist þess að hafa byrjað að misnota ópíóðalyf, sem hún fékk uppáskrifað eftir bílsslys, þegar hún var aðeins tólf eða þrettán ára gömul. Lovato hefur glímt við fíkn allt sitt líf og var hætt komin árið 2018 eftir að hafa tekið of stóran skammt. Lovato ræddi meðal annars um fíknina í hlaðvarpinu Call Her Daddy á dögunum. „Ég byrjaði að prófa mig áfram þegar ég var tólf eða þrettán. Ég lenti í bílslysi og það var skrifað upp á ópíóðaverkjalyf handa mér,“ sagði Lovato.
Saka George Foreman um að hafa brotið á sér
Tvær konur hafa stigið fram og sakað fyrrverandi hnefaleikakappann George Foreman um að hafa brotið á sér kynferðislega á áttunda áratug síðustu aldar. Konurnar voru unglingar þegar þær segja að brotin hafi átt sér stað. New York Times greinir frá. Konurnar koma ekki fram undir sínum raunverulegu nöfnum en notast við nöfnin Gwen H. og Denise S. Báðar hittu þær Foreman í gegnum feður sína þegar þær voru börn.
Tilbúin í nýtt ástarævintýri
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian segist vera tilbúin að kynnast nýjum manni. Hún og grínistinn Pete Davidson hættu saman í síðasta mánuði eftir níu mánaða samband. Það eru fjölmargir kostir í boði fyrir Kardashian en vinir hennar eru ólmir í að koma henni saman með einhverjum af vinum sínum. Kardashian er með ákveðnar hugmynd að því hverju hún er að leita af í næsta sambandi. Hún vill hitta einhvern eldri sem skilur lífið hennar og hennar lífstíl.
Örvæntingarfullur prins vill vinna
Andrés prins er sagður vera afar örvæntingarfullur og þráir ekkert heitar en að sinna aftur sínu konunglega starfi. Prinsinn þurfti að segja sig frá öllum sínum konunglegum skyldum árið 2019 eftir að upp komust tengsl hans við mansalsníðinginn Jeffrey Epstein. Prinsinn var síðan sviptur titlum sínum í janúar á þessu ári. Síðan þá hefur prinsinn haldið sig til hlés að mestu. Hann hefur ekkert sést á opinberum viðburðum ef frá er talin jarðaför föður hans og minningarathöfn.
Skilja eftir 25 ára hjónaband
Leikarinn Sylvester Stallone og Jennifer Flavin standa nú í skilnaði. Flavin sótti um skilnaðinn en þau hafa verið gift í 25 ár. Stallone er 76 ára en Flavin er 54 ára. þau gengu í hjónaband árið 1997, en þá höfðu þau verið saman í níu ár. Þau eiga saman þrjá dætur á aldrinum 20 til 25 ára, Scarlet, Sistine og Sophiu. Stallon á einnig soninn Seargeoh úr fyrra hjónabandi en soninn Sage missti hann árið 2012.
Ekki ákærður fyrir að kýla aðdáanda
Tónlistarmaðurinn Kanye West verður ekki ákærður fyrir atvik sem átti sér stað í byrjun árs þegar West er sagður hafa kýlt aðdáanda sem bað hann ítrekað um eiginhandaráritun. Lögmaður Wests í málinu, Michael Goldstein, kvaðst ánægður með niðurstöðu lögregluyfirvalda eftir því sem fram kemur á vefmiðlinum PageSix. Sagði Goldstein niðurstöðuna sanna sakleysi Wests. Ógn við friðhelgi einkalífs „Við gleðjumst yfir þessari ákvörðun.
Show More
loading
Actions
Is this you?
As a journalist, you can create a free Muck Rack account to customize your profile, list your contact preferences, and upload a portfolio of your best work.Get in touch with Jón Atli
Contact Jón Atli, search articles and posts on X, monitor coverage, and track replies from one place.
Learn more about Muck Rack