Is this you? As a journalist, you can create a free Muck Rack account to customize your profile, list your contact preferences, and upload a portfolio of your best work.
Claim your profile
Articles by Rósa Líf Darradóttir
Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
Þingmenn Miðflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins vilja nú sérstakt átak gegn mink í íslenskri náttúru og aukið opinbert fé til verkefnisins. En áður en við skattgreiðendur erum enn einu sinni látnir greiða fyrir loðdýraræktina, væri ekki skynsamlegri nálgun að binda endi á loðdýrarækt og banna innflutning minka til landsins?
Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokk
Þingmenn Miðflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins vilja nú sérstakt átak gegn mink í íslenskri náttúru og aukið opinbert fé til verkefnisins. En áður en við skattgreiðendur erum enn einu sinni látnir greiða fyrir loðdýraræktina, væri ekki skynsamlegri nálgun að binda endi á loðdýrarækt og banna innflutning minka til landsins?
Kvalajárn - Vísir
Nú hefur 51 langreyður verið drepin á vertíðinni. Sala hvalkjöts til Japans er hætt og fyrir liggja birgðir í frystigeymslum sem ekki seljast. Það er erfitt að hugsa sér nöturlegri mynd af tilgangsleysi: stórhveli látin líða kvalafullan og hægfara dauðdaga á meðan kjötið safnast upp í frystigeymslum. Skýrsla Matvælastofnunar 2023 sýndi að aðeins 59% langreyða dóu samstundis, aflífun gat tekið allt að tvær klukkustundir.
Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga
Mannmiðjuvillan Þessi ríka tilhneiging mannsins til að líta svo á að hann eigi tilkall til auðlinda jarðar og eðlislægt yfirráð yfir öðrum lifandi verum og plánetunni sjálfri. Hún einkennist af djúpum misskilningi mannsins um stöðu sína í vistkerfinu. Það er ekki svo langt síðan að við héldum við að sólin snerist í kringum jörðina og að við værum miðja alheimsins. Maðurinn vill gjarnan telja sér trú um að náttúran þurfi stöðugt á mannlegri stjórn að halda.
Ísland í eigin skinni
Kveikur sýndi í gær myndefni frá íslenskum minkabúum sem sýnir ömurlegan veruleika loðdýraræktar. Tilvera minka í loðdýraeldi er sú dapurlegasta sem hugsast getur. Frá fæðingu til dauðadags dvelur minkurinn í þröngu vírnetsbúri. Eina afþreying sem er í boði er ráfa í tilgangslausa hringi á þessu takmarkaða svæði. Fætur hans fá aldrei að hvíla á öðru undirlagi en mjóum vírunum. Það er minkum eðlislægt að hlaupa, leika, grafa, synda og kanna umhverfi sitt.
Skinka og sígarettur
Þetta eru krabbameinsvaldar. Unnar kjötvörur líkt og beikon, skinka, pepperoni og pylsur tilheyra fyrsta flokki krabbameinsvaldandi efna. Það er flokkur efna sem vitað er að valda krabbameini í mannfólki. Því er mælt með að neyta sem allra minnst af þessum vörum. Neysla á 50 grömmum af unnu kjöti á dag eykur áhættuna á ristilkrabbameini um 18%. Fjöldi rannsókna sýna einnig tengsl milli unninna kjötvara og brjósta-, bris-, blöðruhálskirtils- og þvagblöðrukrabbameina.
30 by 30 - Gefum lífi á jörð smá séns
Við stöndum á tímamótum í samskiptum okkar við náttúruna. Alþjóðlega markmiðið „30 by 30“ snýst um að vernda 30% af landi og hafi jarðarinnar fyrir árið 2030. Þetta er nauðsynleg viðbragðsaðgerð til að stemma stigu við hnignun fjölbreytileika lífríkisins. Aðeins 4% eftir af villtum spendýrum Villt spendýr er aðeins um 4% af öllum spendýrum heimsins, á meðan er búfé 62% og við mannfólkið um 34%.
Við stöndum með Anahitu og Elissu
Við, undirrituð samtök, lýsum yfir stuðningi við Anahitu og Elissu, sem sæta nú ákæru vegna friðsamlegra mótmæla. Réttlætisbarátta hefur jafnan verið leidd af fólki með hugrekki til að mótmæla þegar valdakerfi voru úr takti við siðferðileg viðmið samtímans. Anahita og Elissa gerðu nákvæmlega það. Með því að klifra upp möstrin á Hval 8 og Hval 9 stóðu þær vörð um réttindi dýra og mikilvægi verndar á villtum dýrum. Sérstaklega hvölum sem eru lykiltegund í vistkerfi hafsins.
Hættum að bregðast íslensku hryssunni
Ítrekað hefur verið sýnt fram á kerfisbundið dýraníð í blóðmerahaldi á Íslandi. Nýtt myndefni, sem nú hefur verið birt, dregur fram hvernig dýralæknar sem starfa fyrir Ísteka bregðast hlutverki sínu sem er að tryggja velferð fylfullra hryssa við blóðtöku. Myndefnið sýnir hryssur sem augljóslega eru hræddar. Enda eru þær í slæmum aðstæðum. Þær eru reknar inn í þrönga blóðtökubása, þar sem höfuðið er bundið upp og bakið strappað niður.
Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque
Nýleg umfjöllun Vísis undir yfirskriftinni „Hann kann að dansa, maður minn!“ og „Höfrungar og háhyrningar að leik á Tenerife“ gefur tilefni til að minna fólk á dapurlegu tilveru þessa stórbrotnu dýra sem haldið er föngnum við óboðlegar aðstæður í dýragarðinum Loro Parque á Tenerife.
Mun Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir banna hvalveiðar?
Staðan í dag er sú að Matvælastofnun sem sektaði Hval hf. fyrir brot á dýravelferðarlögum þegar 30 mínútur liðu milli skota á langreyði september í fyrra vinnur nú að skýrslu um veiðarnar á síðasta ári. Væntanlega verður hún gefin út fljótlega. Katrín Jakobsdóttir skipaði starfshóp til að til að fara yfir lagaumhverfi og stjórnsýslu hvalveiða, auk samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar og sáttmála. Skýrsla starfshópsins er þó ekki væntanleg fyrr en í fyrsta lagi í haust.
Mun Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir banna hvalveiðar eða gefa út nýtt leyfi?
Staðan í dag er sú að Matvælastofnun sem sektaði Hval hf. fyrir brot á dýravelferðarlögum þegar 30 mínútur liðu milli skota á langreyði september í fyrra vinnur nú að skýrslu um veiðarnar á síðasta ári. Væntanlega verður hún gefin út fljótlega. Katrín Jakobsdóttir skipaði starfshóp til að til að fara yfir lagaumhverfi og stjórnsýslu hvalveiða, auk samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar og sáttmála. Skýrsla starfshópsins er þó ekki væntanleg fyrr en í fyrsta lagi í haust.
Blóð er ekki mjólk
Framkvæmdastjóri Ísteka sagði í Kastljósi í gær að blóðtaka úr fylfullum hryssum væri ekkert annað en hefðbundinn landbúnaður. Þetta er rangt. Það liggur fyrir í ítarlegri niðurstöðu ESA, heilar 32 blaðsíður af rökstuðningi þess efnis hvers vegna blóðtakan er ekki og getur aldrei talist til landbúnaðar. Blóð er lífsnauðsynlegur vessi í hjarta og æðakerfi dýra. Hraðar breytingar á rúmmáli þess eru lífshættulegar. Mjólk, framleidd af kirtlum líkamans er á engan hátt sambærileg blóði.
Litlir karlar drepa ljúfa risa
Langreyður er næst stærsta dýr á jörðinni á eftir frænku sinni, steypireyðinni. Hún er skíðishvalur sem nærist að mestu á svifkrabbadýrum. Langreyður er farhvalur og er útbreidd um heimsins höf. Þær eru hvala hraðskreiðastar og geta synt á 45 km/klst hraða. Hvalir eru meðal greindustu spendýra, félagslyndir og með einstaka samskiptahæfileika. Hlutverk þeirra má ekki vanmeta í baráttunni við loftslagsvánna. Á lífsferli sínum bindur eitt stórhveli 33 tonn af kolefni sem er á við þúsundir trjáa.
Um blóðtökur úr fylfullum hryssum
Blóðtökur úr fylfullum hryssum hafa verið stundaðar á Íslandi um áratuga skeið. Tilgangur iðnaðarins er að framleiða hormónið PMSG sem notað er í kjötiðnaði erlendis til að auka frjósemi dýra umfram það sem náttúrulegt er. Iðnaðurinn hlaut mikla gagnrýni eftir að myndband af blóðtökum var birt árið 2021 af Tierschutzbund Zürich/Animal Welfare Foundation. Í kjölfarið var reglugerð 900/2022 sett, sem breytti því miður litlu sem engu fyrir dýrin.
Gasklefar á Íslandi
Í mánuðinum birtist grein í Bændablaðinu um kvalafullan dauða svína í erlendum sláturhúsum. Umfjöllunin kemur í kjölfar birtingu myndbanda úr sláturhúsum sem sýna hóp svína engjast um í gasklefum. En það er ekki bara í útlöndum þar sem menn fara illa með dýr. Á Íslandi er þetta algengasta aðferðin við slátrun svína. Um 90% af þeim svínum sem slátrað er á Íslandi enda líf sitt í hræðilegum gasklefanum.
Af minkum og mönnum
Þjóðsagan um minkinn Þegar ég var lítil var ég dauðhrædd um að mæta mink á förnum vegi. Ég var handviss um að þá væru dagar mínir taldir. Það gæti enginn lifað það af að mæta svo blóðþyrstu dýri. Svo kom að því, ég hitti mink. Hann minnti mig á kisuna mína en var helmingur af stærð hennar. Óttaslegin horfðumst við í augu og svo þaut hann í burtu. Ólíkt hræðslu minni þá var ótti hans við mig sannarlega réttmætur. Það er algengt að hafa falska staðalímynd í kollinum um dýr sem eru í földum iðnaði.
Vegan dýranna vegna
Veganúar Fjöldi fólks mátar sig við vegan lífsstílinn í janúarmánuði. Fyrir því liggja yfirleitt umhverfis-, heilsufars- eða dýraverndunarsjónarmið. Mér þykir þáttur dýra vega þyngst, þó hinar ástæðurnar séu einnig göfugar. Ég hef alla tíð verið hænd að dýrum og sóst eftir félagsskap þeirra. Átt þau að vinum og skynjað í þeim eiginleika sem margir telja einskorðast við mannfólk. Ég hef kynnt mér aðstæður dýra í matvælaiðnaði og þjáninguna sem þau upplifa.
Rangfærslur Ísteka
Í Reykjavík síðdegis þann 17.11.2022 var tekið viðtal við Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóra Ísteka, um blóðmerahald fyrirtækisins. Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) vilja koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við málflutning framkvæmdastjórans. Viðbrögð Ísteka Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanna og almennings létu forsvarsmenn Ísteka ekki ná í sig eftir útgáfu myndarinnar “Iceland - Land of 5.000 Blood Mares”.
Meintar rannsóknir blóðmerahalds ekki til
Samkvæmt nýlegri reglugerð matvælaráðherra um blóðtöku úr fylfullum hryssum er áfram leyfilegt að taka 40 lítra af blóði úr hryssu yfir tveggja mánaða tímabil. Reglugerðin breytti engu um aðstæður hryssanna, byggir á takmörkuðum gögnum hagsmunaaðila og ekki er farið fram á ítarlegar rannsóknir á heilsu blóðtökuhryssa. Talsmenn blóðmerahalds og starfsfólk Matvælastofnunar (MAST) hafa ítrekað vísað til rannsókna um starfsemina.
Blóðmerahald – Hvað segja vísindin? - Vísir
Rósa Líf Darradóttir skrifar 16. desember 2021 07:30 Markmiðið með þessari grein er að sýna fram á það á vísindalegum grunni að blóðtaka úr fylfullum hryssum ein og sér er dýraníð. Óháð meðhöndlun, meðferð eða nýtingu afurða. Hversu mikið blóð hefur íslenski hesturinn? Í umræðunni hefur verið talað um að heildarblóðmagn íslenskra hesta sé í kringum 35- 37 lítrar. Ég hef reynt að afla mér heimilda varðandi blóðmagn íslenska hestsins.
Show More
loading
Actions
Is this you?
As a journalist, you can create a free Muck Rack account to customize your profile, list your contact preferences, and upload a portfolio of your best work.Get in touch with Rósa Líf
Contact Rósa Líf, search articles and posts on X, monitor coverage, and track replies from one place.
Learn more about Muck Rack