Þjórsá er eitt verðmætasta vatnshlot landsins, með líffræðilegri fjölbreytni, menningarsögulegu gildi og náttúrulegu jafnvægi sem hefur mótað landslag og vistkerfi í árhundruð. En með fyrirhuguðum framkvæmdum Hvammsvirkjunar stendur hún frammi fyrir djúpstæðu inngripi sem getur raskað þessu jafnvægi varanlega. Áformað er að reisa stíflu rétt ofan við Viðey, þar sem næstum allt vatn árinnar verður leitt í jarðgöng langt frá upprunalegum farvegi.