Viltu að barnið þitt eigi möguleika á að komast í framhaldsskóla eftir að það lýkur grunnskóla? Hvort skiptir meira máli að það sé pláss fyrir öll börn í skólunum okkar eða að einkunnir séu gefnar í tölustöfum? Framhaldsskólar miða við ákveðið kerfi þegar þeir taka inn nemendur í skólana. Það er ekki gert handahófskennt heldur er stuðst við það einkunnakerfi sem nú er í grunnskólunum. Hvaða leiðir skólarnir nota er mismunandi en flestir horfa til árangurs í stærðfræði, íslensku og ensku.